Viðburðir og námskeið

Í eigin krafti
$0.00

Í eigin krafti er djúpt sjálfsstyrkingarnámskeið byggt á Lífsreglunum fjórum, með valkvæðu medicine-retreati í Portúgal.

Með fræðslu og öflugum verkfærum lærum við að tengjast okkur, finna eigin styrk og bregðast við lífinu á nýjan hátt.

Ef þú hefur áhuga á að vita meira þá smelliru á hnappinn hér að neðan og við sendum þér PDF með ítarlegum upplýsingum.

Ef þú vilt sækja um þáttöku þá eru upplýsingar um umsóknarferlið á öftustu síðunni í PDF-skjalinu.

Næsta námskeið

10 laus
pláss

Viðburðir og námskeið

Hugvíkkandi - Level 1
$0.00

Grunnnámskeið fyrir þau sem vilja læra um hugvíkkandi vinnu og nálgast hana á ábyrgan hátt.

Level 1 er fyrir fólk sem vill öðlast betri skilning á hugvíkkandi vinnu, bæði fyrir eigin vegferð og fyrir þau sem finna kall til að styðja aðra af meiri meðvitund.

Í námskeiðinu förum við yfir helstu undirstöður hugvíkkandi vinnu: sögu og samhengi, siðferði, öryggi, mörk, rýmið sjálft og ábyrgð þeirra sem koma að slíku ferli.

Sérstök áhersla er lögð á undirbúning og eftirvinnu. Við skoðum hvað þarf að vera til staðar áður en farið er í hugvíkkandi ferðalag, hvernig hægt er að skapa öruggara utanumhald og hvernig reynslan getur fengið rými til að lifa áfram í daglegu lífi.

Námskeiðið er ekki flýtileið inn í að leiða athafnir, heldur traustur grunnur fyrir þau sem vilja skilja þessa vinnu betur áður en þau fara dýpra.

Level 1 hentar bæði þeim sem eru fyrst og fremst á eigin vegferð og þeim sem vilja síðar halda áfram í frekara nám hjá Hjartasetrinu.

Námskeiðið hefst haustið 2027.
Nákvæmar dagsetningar koma síðar.

Í eigin krafti
$0.00

Í eigin krafti er djúpt sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir þau sem vilja dýpka tengslin við sjálf sig og mæta lífinu af meiri heiðarleika og frelsi.

Námskeiðið byggir á Lífsreglunum fjórum og er persónuleg vegferð þar sem þátttakendur vinna með eigin mynstur, tengsl, mörk og innri rödd.

Í gegnum námskeiðið skoðum við hvernig orð okkar, túlkanir, ályktanir og viðbrögð móta líf okkar og sambönd. Þátttakendur fá verkefni, samtöl og verkfæri sem styðja þau í að taka meiri ábyrgð á eigin lífi án þess að missa samkenndina gagnvart sjálfum sér.

Hver þátttakandi fær úthlutaðan meðferðaraðila í þjálfun úr Level 2 námi Hjartasetursins, sem fylgir þeim persónulega í gegnum ferlið. Samhliða þeirri vinnu fer stór hluti námskeiðsins fram í hópi, með stuðningi kennarateymisins og þeim krafti sem getur myndast þegar fólk fer í gegnum djúpa vinnu saman.

Hluti af ferlinu er valkvætt medicine-retreat í Portúgal, þar sem unnið er enn dýpra með þau þemu sem námskeiðið byggir á.

Námskeiðið hefst 21. febrúar 2027 og lýkur 19. júní 2027.

Í eigin krafti er fyrir þau sem vilja skoða sig af meiri heiðarleika, losna úr gömlum vanamunstrum og finna nýja leið til að standa með sjálfum sér.

Hugvíkkandi - Level 2
$0.00

Framhaldsnám fyrir þau sem vilja dýpka færni sína í hugvíkkandi vinnu og læra að styðja aðra í ferlinu.

Level 2 byggir á grunninum úr Level 1 og hentar þeim sem vilja færa sig úr fræðilegri þekkingu yfir í meiri verklega reynslu. Námið er einnig opið þeim sem hafa sambærilegan grunn annars staðar frá.

Í Level 2 er unnið með það sem getur vaknað í stuðningshlutverkinu: mörk, ábyrgð, tengsl, yfirfærslu, eigin sögu og þá dómgreind sem þarf þegar við styðjum fólk í viðkvæmri innri vinnu.

Hver þátttakandi fylgir einum einstaklingi í gegnum ferli sem inniheldur undirbúning, samtöl, hópavinnu og eftirvinnu. Þátttakendur fá reglulega handleiðslu frá kennarateyminu og læra að skoða bæði það sem gerist hjá skjólstæðingnum og það sem vaknar í þeim sjálfum sem rýmishöldurum.

Þátttakendum býðst einnig að taka þátt í valkvæðu retreati í Portúgal þar sem þau fá verklega reynslu.

Námið hefst 16. janúar 2027 og lýkur með útskrift 20. júní 2027.

Pláss er fyrir 10 þátttakendur.

Level 2 er fyrir þau sem vilja ekki aðeins vita meira um hugvíkkandi vinnu, heldur verða öruggari, meðvitaðri og færari í henni.

Það sem gerir námskeiðin okkar einstök

01 / Ferli sem nær lengra

Námskeiðin okkar eru ekki stök upplifun heldur markvisst ferðalag með undirbúningi, retreati og eftirvinnu. Þannig fær innsýnin tíma og stuðning til að verða að raunverulegri breytingu.

02 / Örugg og fagleg umgjörð

Reynslumikið teymi heldur utan um ferlið af fagmennsku, hlýju og virðingu. Skýr mörk og persónulegar þarfir hvers þátttakanda eru ávallt í fyrirrúmi.

03 / Samsköpun hópsins

Hópurinn er mikilvægur hluti ferðalagsins. Í tengslum, samtölum og sameiginlegri reynslu verður til lærdómur sem getur reynst jafn dýrmætur og sjálft námsefnið.