Um Hjartasetrið
Hjartasetrið býður upp á fræðslu, námskeið, viðburði og retreat fyrir fólk sem vill dýpka tengslin við sjálft sig og nálgast hugvíkkandi vinnu af meiri ábyrgð.
Aðaláherslan okkar er á námskeiðin okkar þar sem fólk fær fræðslu, stuðning og ramma til að undirbúa sig betur fyrir djúpa innri vinnu. Við leggjum mikla áherslu á það sem gerist fyrir og eftir hugvíkkandi reynslu, því athöfnin sjálf er aðeins einn hluti af stærra ferðalagi.
Hjá okkur er unnið með undirbúning, eftirvinnu og öruggt utanumhald. Við hjálpum fólki að skilja betur hvað það er að stíga inn í, hvernig það getur mætt því sem kemur upp og hvernig hægt er að samþætta reynslu inn í daglegt líf.
Hjartasetrið þjónustar bæði fólk sem er að fara í sína eigin persónulegu vegferð og einnig þau sem vilja fræðast um hugvíkkandi vinnu, rýmisheldni og ábyrgðina sem fylgir því að styðja aðra í þessari viðkvæmu vinnu.
Auk námskeiða er einnig hægt að bóka einkatíma, samtöl og meðferð hjá fólki innan teymisins. Slíkir tímar geta hentað þeim sem vilja undirbúa sig betur, vinna úr reynslu, fá stuðning í eftirvinnu eða skoða eigin ferli í öruggu samtali.
Hjartasetrið var stofnað af Bjarka Steini Péturssyni, sem hefur starfað við og menntað sig í hugvíkkandi vinnu síðustu sjö ár.
Í dag kemur öflugt teymi meðferðaraðila og leiðbeinenda að starfinu. Hver og einn kemur með sína reynslu og nálgun, og saman sköpum við það fallega rými sem Hjartasetrið stendur fyrir.
Teymið okkar
-

Bjarki Steinn
Bjarki hefur starfað við hugvíkkandi vinnu síðustu sjö ár, með áherslu á fræðslu, undirbúning og eftirvinnu. Á þeim tíma hefur hann lært hjá fjölbreyttum kennurum og byggt upp víðtæka reynslu af því að styðja fólk í hugvíkkandi vinnu, bæði í einstaklingsvinnu og hópastarfi.
Hann hefur lokið námi í CI & Psychedelic Assisted Therapy hjá Kiyumi og Compassionate Inquiry hjá Dr. Gabor Maté. Hann hefur einnig sótt nám og verklega þjálfun í rýmisheldni og stuðningsvinnu tengdri psilocybin, 5-MeO-DMT og ketamíni.
Bjarki hefur lokið breathwork leiðbeinendanámi hjá Brian R. Kelly, Reiki heilun 1 og 2, 200 klst. jógakennaranámi hjá LYW og markþjálfunarnámi hjá Evolvia.
Í starfi sínu leggur Bjarki áherslu á vandað utanumhald, skýr mörk og þann skilning að hugvíkkandi reynsla sé ekki stök upplifun, heldur stórt ferli sem þarf að nálgast af ábyrgð og virðingu fyrir þeim sem er verið að styðja.
-

Berglind Ólafs
Berglind hefur fjölbreytta menntun og reynslu á sviði kennslu, fjölskyldu- og tengslavinnu, hugvíkkandi meðferðarvinnu og tónheilunar. Hún hefur lengi haft sérstakan áhuga á áföllum, tengslum líkama og sálar og því hvernig erfið reynsla getur setið áfram í líkamanum.
Berglind lauk B.Ed.-kennaranámi árið 2006 og námi í Marriage and Family Therapy árið 2014. Hún lauk einnig eins árs háskólanámi í Alcohol and Drug Counseling hjá Metropolitan State University. Hún hefur lokið námi hjá Integrative Psychiatry Institute sem Psychedelic-Assisted Therapist og sótt sjö daga námskeið hjá MAPS í MDMA-studdri meðferðarvinnu og psychedelic facilitation.
Berglind lærði tónheilun árið 2022, meðal annars vegna áhuga síns á því hvernig hún getur stutt fólk í að tengjast líkama sínum á dýpri hátt. Hún hefur einnig sótt öndunarnámskeið hjá Arnóri Sveinssyni og hefur unnið með KAP, Kundalini Activation Process, síðustu 2,5 ár.
Í starfi sínu hefur Berglind sérstakan áhuga á því hvernig líkaminn geymir reynslu og hvernig hægt er að vinna með hann samhliða samtali.
-

Arnar Már
Arnar hefur fjölbreytta reynslu á sviði líkamsvinnu, öndunar, tónheilunar, orkuvinnu og hugvíkkandi meðferðarvinnu. Hann er ACE einkaþjálfari og hefur lokið Reiki heilun 1 og 2.
Arnar útskrifast í mars 2027 úr þriggja ára námi í Psychedelic-Assisted Therapy hjá AWE/Ecstatic Mysticism. Hann hefur einnig lokið námi í Tibetan Singing Bowl Therapy hjá Harmonic Sounds, Energy Healing hjá Heal Singing Bowl Academy og Aquahara Level 1 og 2 í vatnsmeðferð. Hjá Hjartasetrinu kemur Arnar að rýmishaldi, undirbúningi og eftirvinnu.
Arnar er skapandi, lífsglaður og ævintýragjarn einstaklingur sem hefur unnið sig í gegnum stórar umbreytingar í eigin lífi. Sú reynsla gefur honum einstaka dýpt í þessari vinnu. Hann mætir fólki með opnu hjarta og einlægri trú á að við getum öll fundið okkar leið þegar við fáum þann stuðning sem við þurfum.
-

Íris Arnardóttir
Íris er leikskólakennari og náms- og starfsráðgjafi með víðtæka menntun í núvitund, líkamsmiðaðri vinnu, hugvíkkandi undirbúningi og eftirvinnu.
Hún hefur meðal annars lært Compassionate Inquiry, Somatic Experiencing, MBSR og MBCT, auk þess að hafa lokið fjölbreyttu námi í núvitundarkennslu, þar á meðal Mindfulness Teacher Training frá Bangor University, Teacher Training in Youth Mindfulness og The Power of Awareness Training með Tara Brach og Jack Kornfield.
Íris hefur einnig sótt námskeið hjá Jon Kabat-Zinn, meðal annars Embodied and Enacted Wisdom in Stressful Times og Mindful Parenting.
Hún hefur menntun í Reiki heilun 1 og 2 og hefur lokið fjölmörgum stigum í CranioSacral Therapy hjá Upledger Institute, meðal annars CST1, CST2, SER1, CSP1, CTTB1, SERTIP og Energy Systems and Balancing.
Í starfi sínu leggur Íris áherslu á öruggt rými þar sem fólk fær stuðning til að tengjast sjálfu sér, líkamanum og eigin innri visku.
-

Ása Guðmundsdóttir
Ása hefur fjölbreytta menntun og reynslu á sviði líkamsvinnu, jóga, dáleiðslu, orkuvinnu og náttúrulækninga.
Hún hefur lokið námi í ilmolíufræði og sogæðanuddi hjá Lífsskólanum og er lærður Alkaline Practitioner hjá College of Living Nutrition. Hún hefur einnig lokið 500 klst. jógakennaranámi hjá Yoga skóla Kristbjargar og Ashutosh Muni, auk 150 klst. Yoga Nidra náms hjá Kamini Desai við Amrit Institute.
Ása hefur menntun í klínískri dáleiðslu frá Dáleiðsluskóla Íslands og hefur lokið þriggja ára námi í Walking the Shaman’s Path hjá Patricia White Buffalo. Hún hefur einnig lokið námi í Reiki heilun 1 og 2, KCR (Kinetic Chain Release) og CTR (Connective Tissue Release).
Ása sat námskeið í undirbúningi og eftirvinnu hjá Hjartasetrinu og hefur unnið með okkur síðan. Hún hefur sérstakan áhuga á náttúrulækningum, hugvíkkandi vinnu og því sem lækningajurtir geta kennt okkur. Í starfi sínu leggur hún áherslu á að mæta fólki þar sem það er statt hverju sinni og skapa rými þar sem fólk fær tækifæri til að tengjast sínum innri kennara.
-

Vigdís Heiðrún Viggósdóttir
Vigdís hefur lengi haft mikinn áhuga á sjálfsvinnu, mannlegu eðli og því sem býr undir yfirborðinu. Hún hefur sterka tengingu við náttúruna og sérstakt dálæti á jurtum, táknum, draumum og hinu dulræna.
Vigdís hefur lokið Reiki heilun 1 og 2 hjá Birgittu Halldórsdóttur og námi í dáleiðslu við Dáleiðsluskóla Íslands. Hún hefur einnig verið í fjögurra ára námi í sjamanískri heilun hjá Patricia White Buffalo í gegnum Walking the Shaman’s Path. Síðustu þrjú ár hefur hún jafnframt verið facilitator í því námi. Þar er unnið með sjálfsheilun og orkuheilun í anda Barbara Brennan.
Hún hefur farið í miðilsþjálfun og verið virk í andlegri vinnu, meðal annars í bænahringjum. Hún hefur einnig sótt námskeið hjá Guðrúnu Bergmann og Gulla á Hellnum.
Vigdís sat námskeið hjá Hjartasetrinu og hafði reynslu sem facilitator áður en hún kom inn í teymið. Hjá Hjartasetrinu kemur hún að rýmishaldi og undirbúning.
Það sem liggur Vigdísi sérstaklega á hjarta er að styðja fólk í að finna sína eigin leið. Ekki að vísa því veginn, heldur skapa rými þar sem eigin viska fær að leiða.