top of page

Um þjónustuna

Staðreyndin er sú að hugvíkkandi efni hafa verið að hasla sér völl á heimsvísu undanfarin ár og margir farnir að nýta sér þessi efni sem hvata til andlegs vaxtar og/eða hjálpartæki samhliða annarri sjálfsvinnu. Þrátt fyrir að notkun þessara efna sé enn ólögleg hérlendis þá eru Íslendingar engin undantekning þegar kemur að notkun þessara hjálpartækja.
 

Eins og rannsóknir hafa sýnt fram á þá er faglegur stuðningur við undirbúning og eftirvinnu algjör forsenda þess að hægt sé að nýta sér þessi efni til fullnustu, enda engin töfralausn heldur öflug verkfæri sem geta fært fólki djúpa innsýn og möguleika á hinum ýmsu umbreytingum.

Undirbúningur og eftirvinna er sniðin að þörfum hvers og eins og mikil áhersla er lögð á að einstaklingar rækti með sér færni við að hlusta á eigið innsæi og þarfir, tengist sínum innri heilara og fái faglegan stuðning til þess að vinna úr reynslunni. Einnig er boðið upp á þjónustu fyrir þá sem hafa nú þegar átt hugvíkkaða reynslu og þurfa aðstoð við að vinna úr reynslunni.

bottom of page