top of page
DSCF9987_edited_edited.jpg

BJARKI STEINN PÉTURSSON

Hver er ég?

Mín vegferð hefur kannski einna helst snúist um að skilja hver ég er ekki. Sjá sögurnar sem ég hafði sagt sjálfum mér um veröldina, sjálfan mig og ykkur. Sjá hvaðan þessar sögur koma, hvort þær þjóni mér og hvernig ég get sleppt taki á þeim sem gera það ekki.


Undanfarin fjögur ár hef ég lagt áherslu á að auka færni mína í tengslum við undirbúning og eftirvinnu og hef þar að auki unnið undir handleiðslu stórkostlegra einstaklinga með sérþekkingu á hugvíkkandi vinnu.

Ég er sannfærður um að allir hafi meðfædda eiginleika til þess að ná bata þegar við fáum tækifæri til þess í öruggu og ástríku umhverfi. Mitt helsta verkefni er að veita þér leiðsögn og stuðning til þess að þú getir endurheimt tenginguna við þinn innri heilara fyrir og/eða eftir hugvíkkandi reynslu.

Menntun

2023

Breathwork Coach Training
Breathmasters  Academy

Nám þar sem ákveðin öndunartækni ​var kennd sem er sérhönnuð til að vinna með taugakerfið og undirmeðvitundina.

2023

Compassionate Inquiry and Psychedelic Assisted Therapy
Gabor Maté/Kiyumi

​Nám þar sem samkenndarmiðuð nálgun var kennd samhliða vinnu tengt hugvíkkandi efnum. Tæknin er þróuð af Dr. Gabor Maté.

2023

The Foundations of Therapeutic "Trip Sitting"
Psychedelic Support

Þjálfun þar sem undirstöður í tengslum við therapeutic nálgun hugvíkkandi efna voru kenndar.

2022

5-meO-DMT facilitator training

Þjálfun þar sem undirstöður í tengslum við undirbúning, eftirvinnu og notkun
5-meO-DMT voru kenndar.

2022

Markþjálfunarréttindi
Evolvia

Markþjálfaranám hjá Evolvia þar sem kennd er tækni til að valdefla skjólstæðinginn með því að búa til rými þar sem einstaklingar eru studdir í átt að dýpri sjálfsþekkingu.

2020 - 2022

Handleiðsla í vinnu tengt hugvíkkandi reynslum og úrvinnslu þeirra

Starfsnám undir handleiðslu fagaðila þar sem undirstöður í tengslum við undirbúning, eftirvinnu og notkun hugvíkkandi efna voru kenndar.

2021

Reiki-heilun 1 og 2
​Ágústa Kolbrún Roberts

Reiki-heilun 1 og 2 þar sem kenndar voru aðferðir við ákveðna tegund orkuvinnu.

2019 - 2020

Yogakennaranám
Love Yoga-Warriors

Réttindi til að kenna allar grundvallarstöður yoga ásamt iðkunar á grundvallarlögmálum yoga fræðanna.

bottom of page