
Námskeið í hugvíkkandi undirbúning og eftirvinnu
Námskeið fyrir þá sem vilja læra að styðja aðra í undirbúning og eftirvinnu hugvíkkandi ferðalaga. Hefst 7. mars


Dag- og tímasetning
Námskeiðið hefst 7. mars
Heiðmörk, Heiðmerkurvegur, 161, Iceland
Um viðburðinn
Skráning á póstlistann tryggir ekki pláss á námskeiðið, heldur er það fyrsta skrefið í umsóknarferlinu. Sjá umsóknarferli neðst á síðunni.
Námskeiði hefst síðan 7. mars 2026.

Hvað lærir þú á námskeiðinu?
• Aðferðir við að skapa öruggt og meðvitað rými fyrir aðra
• Undirbúningur fyrir hugvíkkandi vinnu og mikilvægi eftirvinnslu
• Mat á þátttakendum (screening)
• Hlutverk rýmishaldara (sitter/space holder) í umbreytandi vinnu
• Þekking á líffræðilegum, sálrænum og menningarlegum þáttum hugvíkkandi efna
• Verkfæri sem hjálpa þér að vinna með eigin reynslu á faglegan hátt
Athugið!
Námskeiðið felur ekki í sér neina ólöglega notkun hugvíkkandi efna. Fræðilegur hluti námskeiðsins fer fram á netinu og á Íslandi, en verklega þjálfunin fer fram í Portúgal. Þetta er ekki meðferðarúrræði, heldur fræðslu- og þjálfunarnámskeið fyrir þá sem vilja dýpka skilning sinn og læra að styðja aðra á ábyrgan hátt.

Af hverju þetta námskeið?
Við hjá Hjartasetrinu höfum áralanga reynslu í að vinna með og í kringum hugvíkkandi ferðalög. Þetta námskeið er byggt á traustum grunni fræðslu og reynslu. Þetta námskeið hentar bæði þeim sem vilja dýpka sína eigin persónulegu vegferð í tengslum við hugvíkkandi vinnu og einnig fyrir þá sem vilja leiða aðra í gegnum öruggt og ábyrgt ferli.
Tímabil: 7. mars – 27 júní 2026
Lengd: 200 klst
Hvernig fer skráning fram?
❣️ 1. Smelltu á hnappinn hér að neðan og þú færð sent PDF skjal með ítarlegum upplýsingum um námskeiðið.
❣️ 2. Spurningarlisti – Þú fyllir út skjal með upplýsingum sem hjálpa okkur að meta hvort námskeiðið henti þér.
❣️ 3. Stutt samtal – Við förum yfir umsóknina saman og tryggjum að þetta sé rétt fyrir þig.
Endilega fylgist með á samfélagsmiðlunum okkar fyrir nánari upplýsingar.